Blog central búið að liggja niðri í 2 daga... "trals" eins og danirnir segja... því ég hef svo mikið að segja... eða þannig 
Það er eitthvað undarlegt að gerast hér í Vejle... ég fór í "gymið" á mánudag... hitti svona personal instruktor sem fór með mér í gegnum slatta af æfingum og spjallaði helling... hann var samt fyndinn greyið... líklega svona 21 og gat ekki með nokkru móti horft í augun á mér án þess að verða eitthvað sktýtinn og hálf flissandi... hahaha... þá gerði ég auðvitað í því að ná augnsambandi og brosa mínu blíðasta
skemmti mér konunglega... náði samt að fá strengi eftir það takk takk...
Búin að bóka mig í pilates tíma í dag + hálftíma intro á undan... og á morgun í klukkutíma bodypump... þokkalega á að taka á því núna... kemur svo í ljós hvort ég þarf að aflýsa tímanum á morgun af því að ég verð með svo mikla strengi...
seinni tíma vandamál...
Og, bæði í gærkvöldi og á mánudagskvöldið var ég komin uppí rúm klukkan 10... hvað er það.... reyndar með bók sem ég las aðeins áður en ég fór að sofa.... en við erum að tala um mjög spennandi bók... og svoleiðis á ég erfitt með að leggja frá mér... núna... nó prob... ellimerki ?? 
Köben um helgina... ekkert sérstakt planað... hlakka bara til að fara og knúsa litlu dúllurnar mínar og slæpast eitthvað... dýragarðinn jafnvel... og vonandi kíkja á nýju íbúðina hjá Ebba og Gunnellu.... ( er mér ekki örugglega boðið í heimsókn
)
Annars átti ég merkilegan dag í gær... var með á svona testkörsel af nýju námskeiði sem tvær hérna eru að búa til... önnur lærður leikari og hin lærður kennari... tek það framm að þær vinna ekki með mér beint... en jú í Academy... þetta átti að vera um hvernig maður notar líkaman þegar maður er að tala og hvernig maður beitir röddinni og notar hana... vúhú... búhú... þetta var mesta vitleysa sem ég hef tekið þátt í... hver æfingin á eftir annarri án þessa að tala nokkuð um afhverju við gerðum þetta, hvað við fengum útúr því og hvernig við gætum notað þetta... bleeee...
Í einni æfingunni áttum við að standa og öskra á hvort annað, bara finna einhverja ástæðu og á góðri íslensku "drulla yfir hvort annað"... ég byrjaði vel... á dönsku auðvitað... að öskra á eina að hún væri ömurlegur bílstjóri og ætti ekki að hafa ökuskírteini o.sv.f. hehehe... henni fannst það svo fyndið að hún gat ekkert öskrað á móti...
Næsta var ég ekki alveg búin að hugsa hvað ég ætti að vera reið útaf þegar hann byrjaði að öskra á mig og var kominn með hendina á loft mjög ógnandi.... ég ekki að fíla að láta jarða mig í einhverju svona öskraði bara eitthvað á móti... eftir smá stund tókum við eftir því að allir aðrir voru bara hlæjandi að horfa á okkur tvö... þá hafði ég fært mig á móti honum svo hann bakkaði alltaf ósjálfrátt, við erum að tala um mann sem er næstum 2 metrar algjör jaxl ( að fara að labba yfir grænlandsjökul takk fyrir) svo við vorum komin aðeins frá hinum... og ég að öskra á mínu hæsta Á ÍSLENSKU...
þau báðu um þýðingu á því sem ég hafði verið að segja... fengu hana klárlega ekki...
Fyndið samt... svona hef ég aldrei gargað á nokkurn mann held ég... fyrir utan systkini mín
en það var nú meira í gamla daga... ekkert nýlega amk... + það að orðaforðinn og hugmyndafugið hefur aukist aðeins síðan þá... fáviti er ekki lengur það ljótasta sem ég kann...
Og þó... í réttunum´06 varð ég hoppandi vitlaus... uppá fjalli að smala yfir ánna og enginn kom og hjálpaði til...
sátu bara sem fastast með blandið í hendinni á hnakknum og hreyfðu sig ekki... Jón á Hofi einn í ánni að garga á alla... ég þekkti aðstæður þarna þar sem þetta var við okkar merkjagirðigu, en skildi minn hest eftir lengst hinumegin hjá Svandísi sem vissi ekkert hvað var eiginlega í gangi, óð yfir ánna langt uppfyrir og stóð svo hoppandi og gargandi sjóðandi vitlaus með full stígvél af vatni að reyna að láta kindurnar ekki fara yfir á kolvitlausum stað í alltof djúpu og straumhörðu alveg við girðinguna... það hefði verið gaman að þurfa að draga þær uppúr drukknaðar þarna... nokkrir fengu að heyra vel valin orð... alltof fáir samt... manstu eftir þessu Jóhanna 